Goddess


Ástin mín



Vinir

  • Bjössi H.
  • Dísa Skvísa
  • Erna Erlends
  • Eva Ruza
  • Harpa
  • Jóna
  • Kristján
  • Ragnheiður
  • Sibba
  • Signý
  • Sigurgeir


  • Heimasíðan mín



    Áhugaverðar síður

    Erna Kristjáns..............
    fimmtudagur, nóvember 03, 2005
    Hvernig DELETE-AR maður blogsíðu???
    Veit einhver hvernig maður DELETE-AR blogsíðu completely?????
    miðvikudagur, nóvember 02, 2005
    Hvernig tröll ert þú ?


    Partítröll


    Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.


    Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.



    Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.



    Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.


    Hvaða tröll ert þú?
    mánudagur, október 24, 2005
    Gaman í sundi................

    Hér er ein sæt mynd af mæðgunum, Debbý og Amelíu í ungbarnasundi :o) Stelpan verður skvísa eins og mamma sín, það sér maður strax :o)
    mánudagur, október 10, 2005
    Ýmislegt............
    Jæja, nú er langt síðan ég bloggaði síðast. Ég hef bara verið að setja inn brandara og svoleiðis, bara svo eitthvað komi frá mér. Það er mest lítið að frétta af mér, ég er bara búin að vera að vinna og læra út í eitt enda orðin pínulítið þreytt en ég er svo mikil kraftakerling að ég harka þetta af mér :o)

    Nú er ég að fara að kenna samfélagsfræði í 7, 8, 9 og 10 bekk í Breiðholtsskóla frá 18. okt til 17. nóv. Það verður nú gaman, trúi ekki öðru. Við verðum tvær að kenna, ég og Ellý. Við erum búnar að sitja sveittar yfir því að búa til skemmtilega kennsluáætlun og ég held svei mér þá að það hafi bara tekist :o) Þess vegna er ég bara orðin spennt að komast að kenna :o)

    Síðan verð ég að monta mig aðeins, ég er búin að vera svo dugleg í ræktinni að ég er búin að ná af mér 5 kílóum, hvorki meira né minna enda orðin hazarkroppur hehehhe....... Reyndar langt í það ennþá en þetta smá hjakkast af manni, vonandi......... Ætla að reyna að ná mér svona grannri eins og ég var þegar ég var í útskriftarferðinni hehehehe. Maður má nú alveg lifa í voninni :o)

    Annars erum við Björn að fara út í næsta mánuði með vinnunni minn, gaman, gaman segi ég nú bara. Þetta er óvissuferð, vitum ekkert hvert við erum að fara. Það eina sem við vitum er að við eigum að taka evrur með okkur og landið er ca. 3-3:30 tími frá Íslandi. Okkur verður tilkynnt hvert förinni er heitið þegar við erum kominn um borð. Hljómar ekkert smávegis spennandi og auvitað læt ég mig ekki vanta á þetta :o)

    Síðan er ég að fara á Edith Piaff næstu helgi með Birni mínum :o) Ég er búin að bíða lengi eftir að komast á sýninguna enda fékk ég að heyra söng hennar í hverjum einasta frönsku tíma í Verzló. Við vorum síðan alltaf látin syngja lögin með henni og á ég eflaust eftir að láta eitthvað í mér heyra :o) Reyndar hefur Björn heyrt mig syngja á frönsku og var hann fljótur að setja eyrnartappa í eyrum hehehehehhe...... Nei ég segi bara svona, hann hlustaði auðvitað á mig :o)


    Að lokum nokkrar skemmtilegar myndir:


    Ég á Ítalíu fyrir uhummm 5 árum síðan...... Svakalega er maður orðin gamall, finnst bara eins og það séu mesta lagi 2-3 ár.



    Ég og Björn í Bjarnarhöfn :o) Ég eitthvað að tjá mig eins og vanalega :o)



    Ég, Herdís og Björn í Húsafelli að skemmta okkur :o)



    Herdís hress að vanda og farin að sýna smá danstakta :o)



    Herdís og Birkir í banastuði :o)



    Ég búin að stela kúrekahattnum hans Gumma (skilaði honum síðan aftur til hans) og sit róleg í kjöltu Björns míns



    Erna kúlustelpa og Björn kúlustrákur :o)



    Megabeiburnar Ragnheiður & Erna E. hressar eins og vanalega :) Ef maður vissi ekki betur, þá héldi maður að þær væri síamstvíburar því þær eru alltaf samvaxnar við haus heheheheheheh :)



    Mynd tekin af mér og Evu, þegar við stelpurnar vorum að gæsa hana. Eva flott í magadansabúningnum sínum :o)



    Þessi mynd var tekin af mér, Helgu og Valgerði þegar Helga og Sveppi voru að gifta sig :o) Sem minnir mig á það að ég á alltaf eftir að láta Helgu fá myndir af gæsuninni hennar...... Verð að mun að gera það næst þegar ég hitti hana



    Björn og Gérard Depardieu



    Debbý hress að vanda :o)



    Svona hazarkroppur langar mér að vera líkt og Debbý er..........



    Sætar systur, Eva Ruza og Debbý



    Ein dúllumynd af okkur skötuhjúunum í lokin :o)
    föstudagur, október 07, 2005
    Þessir kallar...................
    Þrír karlar sátu saman yfir glasi. Þeir fóru að ræða um eiginkonur sínar.

    Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður en það skemmist.

    Þá segir sá rauðhærði - konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara framan við húsið okkar óhreyfður.

    Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína - ykkur finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha,
    ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér, ha, ha, ha. Hún tók með
    sér 50 pk af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi.
    miðvikudagur, september 28, 2005
    Hvað er málið með þessi Hollywood sambönd.....

    Chad Michael Murray (Lucas Scott)úr One Tree Hill



    Sophia Bush (Brooke Davis)úr One Tree Hill


    Varð fyrir mjög miklum vonbrigðum áðan þegar ég fór á mbl.is, því þar sá ég frétt um að Chad Michael Murray (Lucas Scott) og Sophia Bush (Brooke Davis) eru skilin, úr One Tree Hill þáttunum. Þau eru aðeins búin að vera gift í 5 mánuði. Ég er sko ekki sátt, því þau voru svo sæt saman en svona er víst lífið :o(

    Síðan meir úr Hollywood heiminum, þá voru Demi Moore og Aston Kutcher búin að gifta. Hummmmmm, vona bara fyrir þeirra hönd að hjónabandið verði lengra en hitt...............


    Hef ekki meira að segja núna...........
    föstudagur, september 23, 2005
    Einn góður fyrir helgina...... alla vega minn húmor
    Ungur maður lenti í þeirri óþægilegu aðstöðu að hætta að ná honum upp svo hann fer til læknis. Læknirinn segir honum að vöðvarnir sem stjórni blóðflæðinu niður í liminn séu ónýtir og það sé ekkert sem hægt sé að gera nema að hann sé tilbúinn að prófa tilraunaaðgerð.

    Hann spyr hvernig aðgerð það sé og læknirinn útskýrir það fyrir honum:

    "Við tökum vöðva úr rana fílsunga og græðum þá í stað ónýtu vöðvanna og vonum það besta."

    Honum finnst þetta allt hljóma hálf óhugnalega, en tilhugsunin við að geta aldrei stundað kynlíf framar verður yfirsterkari. Sex vikum síðar er komið að því að prófa græjuna og býður hann kærustunni í því tilefni út að borða. Á veitingastaðnum finnur hann allt í einu ótrúlega pressu á félaganum, hann er að fá standpínu dauðans. Hann ákveður að renna aðeins niður klaufinni til að losa um hann. Um leið og hann opnar fyrir klaufina, sprettur félaginn út, grípur kínarúllu af borðinu og hverfur aftur ofan í buxurnar.

    Kærastan hans gapir orðlaus yfir þessu í nokkrar sekúndur og segir síðan: "Vá, geturðu gert þetta aftur?"


    "Já örugglega," segir gaurinn eldrauður í framan, "en ég er ekki viss um að það komist önnur kínarúlla upp í rassinn á mér."

    _ _ _


    Þessi var nú svo brandari var nú nett góður fyrir helgina, er það ekki......... Fékk hann frá Herdísi fyrir nokkrum dögum og ákvað að geyma hann svona fyrir helgina :o)

    Síðan eitt að lokum. Skoðið myndina hér að neðan, hallið hausnum síðan til vinstri, annars sjáið þið ekki myndina í steininum. Þetta er ótrúleg mynd!